top of page

Ég heiti Maria Lindal Jóhannsdóttir og er fædd í Bolungarvík 5. ágúst 1961.
Ég er gift Þóri Jónssyni og eigum við 3 dætur.

 

Eftir að hafa útskrifast úr tækniteiknun frá Iðnskóla Hafnarfjarðar vorið 2006 hóf ég störf hjá Verkfræðistofu Suðurnesja þar til ég fór í áframhaldandi nám í desember 2008 til Horsens í Danmörku.

Ég stundaði nám í Byggingafræði við VIA háskólann á alþjóðabraut þar sem ég vann með fólki frá ýmsum þjóðum. Einnig kynntumst við fjölskyldan danskri menningu og þjóð. Í desember 2011 fluttum við heim til Íslands aftur reynslunni ríkari eftir 3 góð ár í Danmörku.

Í júlí 2012 útskrifast ég með gráðuna "Bachelor degree in Architectural Technology and Construction Management"

 

Í dag starfa ég sjálfstætt við hönnun og teikningar á Teiknistofu M. Líndal í Reykjanesbæ. 

Tækniteiknari og Byggingafræðingur

Um mig

bottom of page